Velkomin á heimasíðu Sýrlands
Við sérhæfum okkur í öllu því sem snýr að hljóði, hljóðvinnslu og tengdum greinum.
Músíkhljóðverin okkar eru fjögur - Stúdíó Sýrland í Skúlatúni, Stúdíó Sýrland í Hafnarfirði (betur þekkt sem Hljóðriti), Stúdíó Sýrland í Höfðatúni og masteringarstúdíóið Írak. Auk þess bjóðum við upp á sérhannaðan upptökubíl sem hentar vel fyrir upptökur hvar sem er á landinu. Bjóðum líka uppá færanlegan upptökubúnað af ýmsu tagi. Í áratugi hefur Sýrland hljóðritað plötur og tónleika margra helstu listamanna þjóðarinnar.
Talsetningarhljóðverin okkar eru þrjú og staðsett í Vatnagörðum. Hjá okkur starfar samhentur hópur fagmanna á því sviði – frábærir leikstjórar, tæknimenn og leikarar sjá um að talsetja hundruði klukkutíma af sjónvarpsefni og kvikmyndum á ári.
Hönnunar og framleiðsludeildin er í Vatnagörðum. Hún hefur margra ára reynslu í gerð auglýsingaefnis fyrir prent- og netmiðla. Má þar nefna bæklinga, geisladiskaumslög, auglýsingar, kynningarefni og DVD valmyndir. Framleiðsludeildin tekur að sér að framleiða geisladiska og DVD í samvinnu við einn stærsta framleiðanda í heimi – Sony DADC í Austurríki

