08.02.2008 Talsetningarnámskeið fyrir börn og unglinga

Stúdíó Sýrland heldur námskeið í talsetningum fyrir börn og unglinga.

06.02.2008 Blu-ray hjá Sýrlandi

Getum nú boðið framleiðslu á blue-ray diskum í samvinnu við Sony

29.01.2008 Námskeið að hefjast !

Upptöku- og talsetningarnámskeið framundan

16.10.2007 Sýrland í hendur nýrra eigenda!

Sveinn Kjartansson og Þórir Jóhannsson hafa keypt allan hljóðversrekstur af Senu, dótturfyrirtæki 365. Við kaupin eignast fyrirtæki Þóris og Sveins alla starfsemi Senu sem snýr að hljóðverum og tengdum rekstri.

10.07.2007 Magni í Sýrlandi

Magni er nú á lokasprettinum með nýja sólóplötu sína sem kemur út von bráðar. Það verður spennandi að heyra útkomuna!

15.06.2007 Simpsons fjölskyldan talsett

Nú standa yfir talsetningar á nýrri kvikmynd er fjallar um Simpsons sem sýnd verður í sumar.

15.06.2007 Megas í Hljóðrita

Upptökur standa nú yfir í Sýrlandi Hljóðrita Hafnarfirði á nýrri plötu Megasar.

30.03.2007 Lokadagurinn!

Vel var mætt á útskriftardaginn á Talsetningarnámskeiði Sýrlands 30. mars. Skoðið myndir!

29.03.2007 Viðurkenningar afhentar

Nú er komið að því að afhenda viðurkenningar og DVD diska frá Talsetningarnámskeiði Sýrlands sem haldið var á dögunum. Ætlunin er að hittast kl 16.30-17.00 og hafa það gott saman.

19.03.2007 Músíktilraunir 2007

Nú fara fram hinar árlegu músíktilraunir sem haldnar hafa verið í fjöldamörg ár. Sýrland er eitt þeirra hljóðvera sem gefa verðlaun í keppnina.

19.03.2007 Ráðstefna hjá Sony Pictures

Nú nýverið hélt Sony Pictures í London ráðstefnu vegna talsetningar á myndinni SURF'S Up sem sýnd verður hér á landi í sumar.

12.03.2007 Teenage Mutant Ninja Turtles

Ný mynd frá Weinstein Company sem er í talsetningu hjá Sýrlandi og verður hún frumsýnd 30. mars næstkomandi. Skoðið myndbrot.

27.02.2007 Verðlaunagripur fyrir Söngvakeppnina

Hönnunardeildin fékk það verkefni að hanna verðlaunagrip fyrir sigurlagið í Söngvakeppni Sjónvarpsins.

27.02.2007 Tæki til sölu

Við höfum verið að taka aðeins til hjá okkur, bæði endurnýja tæki og breyta til. Við það hafa komið upp nokkur búnaður sem er til sölu.

08.02.2007 Fyrsti dagurinn á Talsetningarnámskeiði Sýrlands

Fyrsti dagurinn á Talsetningarnámskeiði Sýrlands fór fram í dag og mættu 70 manns - foreldrar, börn og unglingar!

02.02.2007 Góð þátttaka á talsetningarnámskeiðin!

Fyrir skömmu auglýsti Sýrland talsetningarnámskeið fyrir börn og unglinga og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa!

19.01.2007 Nánari upplýsingar um talsetningarnámskeið!

Nánari upplýsingar varðandi talsetningarnámskeið Sýrlands er hægt að skoða hér á netinu.

11.01.2007 Talsetningarnámskeið fyrir börn og unglinga

Sýrland hefur ákveðið að setja á laggirnar námskeið í talsetningum fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-11 ára og 12-16 ára.

02.01.2007 Söngvakeppni Sjónvarpsins 2007

Nú standa yfir upptökur á nokkrum lögum sem valin voru úr innsendum lögum í keppnina.

09.12.2006 Vefur Karlottu

Nú stendur yfir lokafrágangur á talsetningu myndarinnar Charlotts Web.

SÝRLAND Vatnagörðum 4 | 104 Reykjavík | Tel.: +354 563 2910 Fax: 563 2911 | www.syrland.is | bokanir@syrland.is | Keyrt á WebEd Pro