Framleiðsla á CD og DVD
Sýrland í samvinnu við SONY DADC í Austurríki sér um framleiðslu á geislaplötum og DVD mynddiskum.Hér til hliðar eru linkar á ýmsar leiðbeiningar við hönnun á DVD og geislaplötuumslögum. Allar stærðir er að finna í þessum PDF skrám og einnig er template í Freehand og Illustrator.
Freehand skjöl eru þjöppuð með Stuffit.
Athugið að öll pdf skjöl þurfa að vera útbúin með stillingum
frá SONY og er þau að finna hér
Hér eru nokkur atrið sem vert er að hafa í huga áður en framleiðsla hefst.
1. STEFÁður en framleiðsla hefst þarf að liggja fyrir leyfi frá STEF fyrir viðkomandi framleiðslu.
Venjulega sendir STEF okkur tölvupóst um að viðkomandi hafi aflað sér leyfi til að framleiða ákveðinn fjölda diska.
2. UMBÚÐIR
Athugið að allar myndir verða að vera í 300 DPI upplausn, CMYK, alls ekki RGB og að skjölin verða að blæða 3mm hið minnsta og innihalda skurðarmerki. 3mm fyrir utan skurð er gott að setja inn framleiðslunúmer ásamt blaðsíðutali. Þó þetta skerist af þá er nauðsynlegt fyrir okkar að hafa þetta í framleiðsluferlinu. Allir hlutar þurfa að hafa framleiðslunúmer, þ.e. þetta sem við sjáum venjulega á kilinum á diskum. Númerið sjálft er undir hverjum og einum komið en samanstendur venjulega af 2-3 bókstöfum og svo tölustaf. Þetta þarf að vera á öftustustíðu bókar, á disknum sjálfum og svo á bakinu eða digipak.
Allar nánari upplýsingar verða að fylgja með í Word-skjali þar sem útlistað er hvað bókin er margar síður, hvaða sérlitir eru í notkun og þess háttar. eins nánar upplýsingar og hægt er að gefa.
Í bæklingnum sjálfum þurfa síðurnar að vera útskotnar eða ein síða á síðu og þá í einu pdf skjali.
ATHUGIÐ! Áður en þú kýst að velja eitthvað af þeim skjölum hér fyrir neðan skaltu hafa samband við okkur og kanna hvort viðkomandi skjal er ekki örugglega rétt fyrir verkið. Formin eru afskaplega misjöfn og munar stundum ekki nema brot úr millimetra á þeim. Kannaðu fyrist til að spara tíma og fyrirhöfn :)
Hér er skjal sem útskýrir hvernig pdf-skjal er útbúið How to create PDF.pdf
Hér eru allar leiðbeiningar um hvernig skal útbúa PDF úr InDesign
How to create PDF from InDesign
Hér er að finna allar helstu upplýsingar um stærðir og þess háttar.
Sony bæklingur um CD
Sony bæklingur um DVD
CD Template Freehand (.sit eða .zip fælar)
Booklet Inlaycard Labels Sleeve DualDisc
CD Template Illustrator
Booklet Inlaycard SuperJewelCase útsíður innsíður Labels A B C D Sleeve
CD Template Indesign
Booklet Inlaycard SuperJewelcase Label spec D
Helstu Digipack teikningar
Ýmis merki tengd framleiðslu
Copycontrol Freehand Illustrator
Compact Disc logo Freehand Illustrator
STEF logo Freehand Illustrator
