Góð þátttaka á talsetningarnámskeiðin!
Fyrir skömmu auglýsti Sýrland talsetningarnámskeið fyrir börn og unglinga og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa!
Nú þegar er nánast orðið fullt á fyrstu 2 námskeiðin sem byrja 8. febrúar og fögnum við þessum góðu viðtökum. Námskeiðin voru auglýst fyrir aldurinn 8-16 ára en vegna mikilla fyrirspurna um námskeið fyrir eldri nemendur þá höfum við ákveðið að setja á laggirnar námskeið fyrir þá. Það verður auglýst innan tíðar.
