Ráðstefna hjá Sony Pictures

Nú nýverið hélt Sony Pictures í London ráðstefnu vegna talsetningar á myndinni SURF'S Up sem sýnd verður hér á landi í sumar.
Á ráðstefnunni voru saman komnir leikstjórar og tæknimenn frá öllum þeim löndum sem myndin verður talsett í. Farið var yfir handritið og ræddar ýmsar útfærslur. Þessi mynd er frábrugðin öðrum myndum að því leyti að í henni er krafist að samtöl séu tekin upp með mörgum leikurum í einu. Þetta skapar nokkur vandamál hjá tæknimönnum og voru gerðar nokkrar tilraunir með þetta í hljóðveri Sony Pictures. Sýrland er nú að prufa leikara í þessa mynd.

Hér er hægt að skoða myndbrot.

Til baka

SÝRLAND Vatnagörðum 4 | 104 Reykjavík | Tel.: +354 563 2910 Fax: 563 2911 | www.syrland.is | bokanir@syrland.is | Keyrt á WebEd Pro