Sýrland í hendur nýrra eigenda!
MYND: Eigendurnir Sveinn Kjartansson og Þórir Jóhannsson ásamt Arnþóri
Örlygssyni (sitjandi) sem verður yfirmaður hljóðvera Sýrlands
Sveinn Kjartansson og Þórir Jóhannsson hafa keypt allan hljóðversrekstur af Senu, dótturfyrirtæki 365. Við kaupin eignast fyrirtæki Þóris og Sveins alla starfsemi Senu sem snýr að hljóðverum og tengdum rekstri, en þau eru Stúdíó Sýrland í Skúlatúni, Sýrland Hljóðsetning í Vatnagörðum og Sýrland Hafnarfirði sem betur er þekkt undir nafninu Hljóðriti.
Sýrland Skúlatúni og Sýrland Hafnarfirði hafa aðallega verið starfrækt við upptökur á tónlist en Sýrland Hljóðsetning í Vatnagörðum er stærsta hljóðsetningarstúdíó á Íslandi og hefur sérhæft sig í hljóð- og talsetningum fyrir sjónvarps- og kvikmyndir.
Hjá Sýrlandi starfa um 15 manns auk þess sem félagið er með samninga við á annan tug leikara sem koma að talsetningu. Fyrirtækið annast meðal annars upptökur á tónlist, hljóðblöndun, masteringar, talsetningar fyrir sjónvarpsefni og kvikmyndir, framleiðslu á geisladiskum/DVD og grafíska hönnun. Auk þess rekur Sýrland sérhannaðan upptökubíl sem notaður er við upptökur á tónlist og öðru efni víðs vegar um landið. Bíllinn hefur t.d. verið mikið notaður í kirkjum landsins við upptökur á klassískri tónlist.
Eftirspurn eftir hljóðvinnslu ýmiskonar hefur verið að aukast á síðustu árum og Stúdíó Sýrland býður vandaðar heildarlausnir á því sviði. Markmið fyrirtækisins er að bjóða framúrskarandi aðstöðu til hvers konar hljóðvinnslu hvort sem um er að ræða hefðbundna tónlistarupptöku eða hljóðsetningu fyrir sjónvarp, kvikmyndir og annað sem lýtur að hljóði. Stúdíó Sýrland er stærsta fyrirtæki landsins á þessu sviði hvort sem litið er til tónlistar eða hljóðsetningar og hefur á að skipa öflugu starfsfólki með langa reynslu að baki.
