Námskeið að hefjast !
Nú stendur yfir undirbúningur fyrir námskeið sem verða í febrúar og mars.
Í boði verða tvennskonar upptökunámskeið, fyrir byrjendur og lengra komna. Kennt verður í hljóðverum Sýrlands og munu valinkunnir upptökumenn sjá um kennsluna.
Til baka
Talsetningarnámskeiðið sem haldið var í fyrra mæltist mjög vel fyrir og nú hefur verið ákveðið að blása til leiks á ný - og nú fyrir fullorðna líka. Námskeiðin fyrir börn og unglinga verða með svipuðum hætti og síðast - kennt 1x í viku í fjórar vikur.
Fjöldi á námskeiðunum er takmarkaður og því verður að bregðast hratt við þegar byrjað verður að taka við skráningum
Nánar auglýst síðar
