Blu-ray hjá Sýrlandi
Undanfarin misseri hafa tveir staðlar - Blu-ray og HD háð mikið stríð um það hvor tæknin yrði ofan á fyrir næstu kynslóð diska sem tækju við af DVD. Nú virðist ljóst að Blu-ray tækni Sony verði sigurvegari. Fyrir skömmu tilkynnti stórútgáfufyrirtækið Time-Warner að þeir ætluðu að einbeita sér að framleiðslu diska fyrir Blu-ray og er almennt talið að það hafi verið rothöggið á HD tæknina.
Nánari upplýsingar veitir Páll Ólafsson framleiðslustjóri Sýrlands
Til baka
