Vatnagarðar

Í Sýrlandi Vatnagörðum eru þrjú hljóðver undir sama þaki og hefur hvert um sig yfir að ráða öflugum tækjakosti. Öllum tækjum sem gefa frá sér eitthvað hljóð er haganlega komið fyrir í sérstöku tækjaherbergi, þannig að hljóðverin sjálf eru ákaflega hljóðlát og því þægilegt að vinna í þeim. Upptökuklefarnir eru þrír, einn fyrir hvert hljóðver. Sá stærsti þykir hljóma sérstaklega vel og hefur fengið viðurkenningu frá einum stærsta viðskiptavini Sýrlands, Disney, en þar á bæ eru gerðar gífurlegar kröfur til hljóðgæða og allrar eftirvinnslu.

Auk talsetningar á barnaefni og kvikmyndum er fengist við hverskonar hljóðvinnslu í hljóðverum Sýrlands, til dæmis hljóðsetningu kvikmynda, sjónvarps- og útvarpsauglýsinga, sjónvarpsþátta, útvarpsleikrita og tölvuleikja.


08.02.2008 Talsetningarnámskeið fyrir börn og unglinga

Stúdíó Sýrland heldur námskeið í talsetningum fyrir börn og unglinga.

06.02.2008 Blu-ray hjá Sýrlandi

Getum nú boðið framleiðslu á blue-ray diskum í samvinnu við Sony

SÝRLAND Vatnagörðum 4 | 104 Reykjavík | Tel.: +354 563 2910 Fax: 563 2911 | www.syrland.is | bokanir@syrland.is | Keyrt á WebEd Pro