Hönnunardeild

Margra ára reynsla okkar í gerð kynningarefnis, af öllu tagi, hvort heldur er fyrir prent eða ljósvakamiðla gerir okkur góðan kost fyrir þig til að leita til. Við fylgjum öllum okkar verkum vel eftir og með hagstæðum samningum við prentsmiðjur og ljósvakamiðla sjáum við til þess að hlutirnir séu eins og til er ætlast.

Við höfum margra ára reynslu í hönnun á geisladiskaumbúðum og erum í náinni samvinnu við Sony DADC í Austurríki með framleiðslu.

Útgáfa á DVD diskum er sífellt að aukast. Hönnun og forritun á slíkum diskum er einnig vaxandi þáttur í starfsemin okkar, helstu verkefni okkar undanfarið eru Bubbi 06.06.06, Sálin og Gospel og Björgvin og Sinfó.

Hönnun á umhverfisgrafík og stórprentun er daglegt brauð hjá okkur og með náinni samvinnu við fagmenn á þessu sviði fáum við bestu og hagkvæmustu útkomuna.

Prentun á staðnum: Við bjóðum upp á plakataprentun í allt að 90 cm á breidd í toppgæðum og stafræna prentun fyrir smærri upplög.

Leitaðu til okkar og við gerum þér tilboð.


Sýnishorn I

08.02.2008 Talsetningarnámskeið fyrir börn og unglinga

Stúdíó Sýrland heldur námskeið í talsetningum fyrir börn og unglinga.

06.02.2008 Blu-ray hjá Sýrlandi

Getum nú boðið framleiðslu á blue-ray diskum í samvinnu við Sony

29.01.2008 Námskeið að hefjast !

Upptöku- og talsetningarnámskeið framundan

16.10.2007 Sýrland í hendur nýrra eigenda!

Sveinn Kjartansson og Þórir Jóhannsson hafa keypt allan hljóðversrekstur af Senu, dótturfyrirtæki 365. Við kaupin eignast fyrirtæki Þóris og Sveins alla starfsemi Senu sem snýr að hljóðverum og tengdum rekstri.

SÝRLAND Vatnagörðum 4 | 104 Reykjavík | Tel.: +354 563 2910 Fax: 563 2911 | www.syrland.is | bokanir@syrland.is | Keyrt á WebEd Pro