Talsetningarnámskeiðin hefjast

Talsetningarnámskeiðin geysivinsælu hefjast núna í vikulokin með kynningarfundi. Þar munu allir þeir sem hafa skráð sig á námskeið verða boðaðir og svo hefst eiginleg kennsla í næstu viku. Námskeiðin munu standa yfir fram í nóvember.

Mjög góð þátttaka er bæði á barna- og fullorðinsnámskeiðin. Þó er enn mögulegt að bæta við þátttakendum. Við bendum áhugasömum á að hringja í síma 563-2910 eða senda póst á bokanir@syrland.is

 

Fréttir Back