Hljóðver

studio.jpg

Hvaða “sánd” vilt þú?

Sýrland rekur fimm hljóðver sem hvert um sig er vel tækjum búið og hefur á að skipa færustu tæknimönnum sem völ er á. Margir af okkar þekktustu listamönnum hafa hljóðritað plötur sínar hjá fyrirtækinu í gegnum árin. Alþjóðlegar stórstjörnur hafa líka verið tíðir gestir í Sýrlandi og má þar nefna  Björk, Blur, Damon Alban, Morten Harket að ónefndri Sigurrós sem tók upp sína fyrstu plötu, Ágætis byrjun, í Sýrlandi.  

Sýrland hefur einnig hljóðritað og hljóðblandað marga af þeim stórtónleikum sem haldnir hafa verið hérlendis undanfarin ár og má þar t.d. nefna Náttúrutónleika Bjarkar og Sigurrósar í Laugardalnum, Þursaflokkinn og Caput í Laugardalshöll, Björgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands í Laugardalshöllinni, Frostrósir, Sálina og Gospel og Bubba Morthens 060606 svo eitthvað sé nefnt. 

Sýrland hefur innanborðs marga fyrsta flokks hljóðupptökumenn og má þar nefna Adda 800, Svein Kjartansson, Guðmund Kristinn Jónsson (Kidda í Hjálmum), Vigni Snæ Vigfússon, Finn Hákonarson, Aron Arnarson, Baldvin A B Aalen og Kristinn Sturluson.