
Eins og að búa í póstkorti
Sýrland DK er svokallað "Residential Studio" þar sem boðið er upp á gistingu samhliða upptökuaðstöðu. Sýrland DK er því tilvalið fyrir tónlistarmenn sem vilja slaka á í sveitinni og taka upp plötu, æfa fyrir tónleikaferð eða annað. Húsnæðið skiptist í þrjá hluta, íbúð, hljóðver og gistiheimili.
Hægt er að leigja alla hluta hússins, hljóðver og gistiaðstöð, saman eða sitt í hvoru lagi. Gistiheimilið er búið sex 2ja manna herbergjum, eldunaraðstöðu og stórum borðsal. Í íbúðinni er stofa, borðstofa, eldhús og tvö stór svefnherbergi.
Húsið, sem er byggt 1743, hefur nýlega verið gert upp og er nú glæsilegra en nokkru sinni.
Við bendum áhugasömum að hafa samband við Þóri (thorir hjá syrland.is) eða hringja í síma +354 563 2910.
Frekari upplýsingar um Sýrland DK er að finna á www.syrland.dk

Sýrland talsetur árelga fjölda mynda fyrir kvikmyndahús lan 