Hönnun / framleiðsla

box2.jpg

Ertu að gefa út CD/DVD?

Margra ára reynsla okkar í gerð kynningarefnis af öllu tagi, hvort heldur er fyrir prent- eða ljósvakamiðla gerir okkur að góðum kosti fyrir þig. Við fylgjum öllum okkar verkum vel eftir og með hagstæðum samningum við prentsmiðjur og ljósvakamiðla sjáum við til þess að hlutirnir séu eins og til er ætlast.

Við höfum margra ára reynslu í hönnun á geisladiska og DVD umbúðum og erum í náinni samvinnu við Sony DADC í Austurríki er varðar framleiðslu.

Útgáfa á DVD diskum er sífellt að aukast. Hönnun og forritun á slíkum diskum er einnig vaxandi þáttur í okkar starfsemi. Helstu verkefni okkar upp á síðkastið eru Páll Óskar - Silfursafnið, Sálin hans Jóns míns - Hvar er draumurinn, Stiklur 1-16, Bubbi 06.06.06, Sálin og Gospel og Björgvin og Sinfó.