Leiðbeiningar
Nokkur atrið er hafa skal í huga áður en framleiðsla hefst:
1. STEF
Skrá þarf viðkomandi efni hjá STEF áður en framleiðsla hefst og skal senda það leyfi á okkur. Hægt er að gera þetta á netinu á http://stef.is/ eða hafa samband við þá símleiðis.
2. Umbúðir
Athugið að allar myndir verða að vera í 300 DPI upplausn, CMYK, alls ekki RGB og að skjölin verða að blæða 3mm hið minnsta og innihalda skurðarmerki.
3mm fyrir utan skurð er gott að setja inn framleiðslunúmer ásamt blaðsíðutali. Allir hlutar þurfa að hafa framleiðslunúmer, þ.e. þetta sem við sjáum venjulega á kilinum á diskum. Númerið sjálft er undir hverjum og einum komið en samanstendur venjulega af 2-3 bókstöfum og svo tölustaf. Þetta þarf að vera á öftustustíðu bókar, á disknum sjálfum og svo á bakinu eða digipak.
Gott er að láta allar nánari upplýsingar fylgja með í Word-skjali þar sem útlistað er hvað bókin er margar síður, hvaða sérlitir eru í notkun og þess háttar. Þetta auðveldar okkur að átta okkur á verkinu og kemur í veg fyrir mistök.
Í bæklingnum sjálfum þurfa síðurnar að vera útskotnar eða ein síða á síðu og þá í einu pdf skjali.
ATHUGIÐ! Áður en þú kýst að velja eitthvað af þeim skjölum sem eru hér á síðunni skaltu hafa samband við okkur og kanna hvort viðkomandi skjal er ekki örugglega rétt fyrir verkið. Formin eru afskaplega misjöfn og munar stundum ekki nema brot úr millimetra á þeim. Kannaðu fyrist til að spara tíma og fyrirhöfn :)

Sýrland talsetur árelga fjölda mynda fyrir kvikmyndahús lan 