Byrjendanámskeið

Hvað?


Gott námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að taka upp tónlist á tölvunni heima fyrir og geta skilað af sér tónlist á hlustunarhæfu formi.

Fyrir hvern?

Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa litla eða enga reynslu af upptökum en vilja koma sér af stað.
Inngangskröfur eru í raun engar en tónlistarkunnátta/áhugi og nokkuð haldbær tölvukunnátta eru stór kostur.

Hvernig fer þetta fram?

Kennt verður sex laugardaga, 6 tíma í senn. Farið er ítarlega í Pro tools upptökukerfið þannig að nemendur hafi góð tök á því.

Farið verður ítarlega í grunnhugtök og vinnubrögð við upptökur og klippingu efnis, vinnslu og frágang.
Efnið verður skoðað frá tæknilegum og fræðilegum hliðum.

Svo verður farið í einfaldar upptökur með hljóðfæraleikurum og þær unnar frá grunni til geisladisks.

Eftir námskeiðið?

Eiga nemendur að geta tekið upp, klippt og hljóðblandað efni sitt á viðunandi hátt.
Hljóðvinnsla spannar breitt svið og því er mjög gott að taka svona námskeið til þess að koma sér af stað og forðast gildrurnar sem mest.

Lýsing

Kennarar verða;

Páll S. Guðmundsson en hann hefur unnið hjá Ríkissjónvarpinu til fjölda ára og stýrt upptökum á ýmsum tónlistar viðburðum bæði beint sem og fyrir safn RÚV.

Kristinn S. Sturluson en hann hefur unnið hjá Sýrlandi til margra ára sem hljóðmaður í talsetningu sem og tónlist.

Námskeiðið skiptist í tvo hópa sem hittast á laugardögum klukkan 10 til 16 annarsvegar og 16 til 22 hinsvegar

 

Dagur 1 fer nánast alfarið í að kynnast Pro Tools umhverfinu og grunnhugtökum í stúdíóinu sem einfalda alla vinnu til muna.

Dagur 2 er haldið áfram í Pro Tools og þá kafað örlítið dýpra í það og hugtök áfram útskýrð á einfaldan hátt.

Dagur 3 er nýttur til að taka upp einfaldan lestur og klippa hann til. Þannig læra nemendur á öll helstu klippitólin og upptökuferlið í Pro Tools.

Dagur 4 er svo nýttur í að taka upp einfalt lag með trúbador.

Dagur 5 er nýttur til þess að klippa til, raða upp og byrja að hljóðblanda lagið sem trúbadorinn hafði tekið upp á degi 4.

Dagur 6 er svo nýttur til að klára hljóðblöndun, mastera létt og ganga frá laginu á geisladisk.