Hljóðtækninám

hljodupptokunamskeid.jpg

Námskeið

Stúdíó Sýrland stendur árlega fyrir námskeiðum í hljóðupptöku. Námskeiðin skiptast í byrjenda- og framhaldsnámskeið. Þau eru kennd á vorönn og næstu námskeið hefjast í mars 2009. Námskeiðin eru þó í endurskoðun í ljósi Hjóðupptökunámsins sem má lesa um hér að neðan. Nánar verður sagt frá þeim og skipulagi þeirra á næstu misserum.


Hljóðupptökufræði

Stúdíó Sýrland mun í samvinnu við Tækniskólann - skóla atvinnulífssins hefja kennslu í nýju fagi, Hljóðfræði, frá janúar 2009.

Námið er mjög metnaðarfullt og mun taka eitt ár - verða 3 annir; vor, sumar og haustönn.

Áhersla mun verða lögð á að nemendurnir kynnist hljóðfræði frá grunni - allt frá vinnslu með hljóðbönd (teip) til flóknustu og nýtískulegustu aðferðafræði sem notuð er við hljóðvinnslu í dag.

M.a. verða kenndar tónlistarupptökur, hljóðsetningar, hljóðblandanir, masteringar, tónleikaupptökur og eftirvinnsla á hljóði fyrir sjónvarpsþætti, auglýsingar og kvikmyndir og fleira sem tengist hljóðvinnslu

Náminu líkur með lokaverkefni, auk þess sem gert er ráð fyrir starfsnámi að því loknu

Rétt er að taka fram að endanleg skipan námsins er í mótun og getur tekið einhverjum breytingum.  Námið mun þó verða fullmótað þegar kennsla hefst í janúar.

Allar nánari upplýsingar um námið má finna á www.hljodneminn.is