Hljóðupptökunámskeið

- Byrjendanámskeið-
- Framhaldsnámskeið-
Byrjendanámskeið
Byrjendanámskeið
Hvað?
Gott námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að taka upp tónlist á tölvunni heima fyrir og geta skilað af sér tónlist á hlustunarhæfu formi.
Fyrir hvern?
Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa litla eða enga reynslu af upptökum en vilja koma sér af stað. Inngangskröfur eru í raun engar en tónlistarkunnátta/áhugi og nokkuð haldbær tölvukunnátta eru stór kostur.
Hvernig fer þetta fram?
Kennt verður sex laugardaga, 6 tíma í senn. Farið er ítarlega í Pro tools upptökukerfið þannig að nemendur hafi góð tök á því.
Farið verður ítarlega í grunnhugtök og vinnubrögð við upptökur og klippingu efnis, vinnslu og frágang. Efnið verður skoðað frá tæknilegum og fræðilegum hliðum.
Svo verður farið í einfaldar upptökur með hljóðfæraleikurum og þær unnar frá grunni til geisladisks.
Eftir námskeiðið?
Eiga nemendur að geta tekið upp, klippt og hljóðblandað efni sitt á viðunandi hátt. Hljóðvinnsla spannar breitt svið og því er mjög gott að taka svona námskeið til þess að koma sér af stað og forðast gildrurnar sem mest.
Lýsing
Kennarar verða;
Páll S. Guðmundsson en hann hefur unnið hjá Ríkissjónvarpinu til fjölda ára og stýrt upptökum á ýmsum tónlistar viðburðum bæði beint sem og fyrir safn RÚV.
Kristinn S. Sturluson en hann hefur unnið hjá Sýrlandi til margra ára sem hljóðmaður í talsetningu sem og tónlist.
Námskeiðið skiptist í tvo hópa sem hittast á laugardögum klukkan 10 til 16 annarsvegar og 16 til 22 hinsvegar
Dagur 1 fer nánast alfarið í að kynnast Pro Tools umhverfinu og grunnhugtökum í stúdíóinu sem einfalda alla vinnu til muna.
Dagur 2 er haldið áfram í Pro Tools og þá kafað örlítið dýpra í það og hugtök áfram útskýrð á einfaldan hátt.
Dagur 3 er nýttur til að taka upp einfaldan lestur og klippa hann til. Þannig læra nemendur á öll helstu klippitólin og upptökuferlið í Pro Tools.
Dagur 4 er svo nýttur í að taka upp einfalt lag með trúbador.
Dagur 5 er nýttur til þess að klippa til, raða upp og byrja að hljóðblanda lagið sem trúbadorinn hafði tekið upp á degi 4.
Dagur 6 er svo nýttur til að klára hljóðblöndun, mastera létt og ganga frá laginu á geisladisk.
Framhaldsnámskeið
Framhaldsnámskeið
Hvað?
Gott námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að taka upp tónlist í professional stúdíóum, á tónleikum eða heima fyrir.
Fyrir hvern?
Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa einhverja reynslu í upptökum hvort sem er heima fyrir eða í stúdíói. Inngangsskilyrði eru haldbær kunnátta á upptökuforriti, góð tölvukunnátta og einhver reynsla.
Hvernig fer þetta fram?
Námskeiðið er átta vikur og alls 70 klukkutímar. Unnið verðu í Pro Tools upptökukerfinu og það skoðað ítarlega. Farið verðu í fræðileg hugtök og vinnureglur, signal flow í stórum stúdíóum, verkferli og fleira. Þá verður ráðist í upptökur af ýmsum toga s.s. lestur, trúbador og hljómsveit. Einnig verður farið í masteringu. Unnið verðu í nokkrum af stúdíóum Sýrlands s.s. Vatnagörðum, Hljóðrita, Sýrlandi Skúlatúni og Írak mastering.
ATH! Ekki verður farið í neins konar kennslu varðandi tónlistarsköpun sem slíka þar sem það er efni í áralangt nám en ekki 8 vikna námskeið. Ekki verður heldur farið mikið í MIDI.
Eftir námskeiðið?
Eiga nemendur að vera fullfærir um að sjá um sig sjálfir við nokkurn veginn hvaða aðstæður sem er í upptökum. Kunna skil á helstu gerðum hljóðnema, formagnara. Skilja grunnhugtök í hljóði hvort sem unnið er stafrænt eða hliðrænt (analog eða digital). Vera færir um að taka upplýstar ákvarðanir um verkferli, notkun tækja og frágang.
Lýsing
Kennarar verða;
Páll S. Guðmundsson en hann hefur unnið hjá Ríkissjónvarpinu til fjölda ára og stýrt upptökum á ýmsum tónlistar viðburðum bæði beint sem og fyrir safn RÚV.
Kristinn S. Sturluson en hann hefur unnið hjá Sýrlandi til margra ára sem hljóðmaður í talsetningu sem og stónlist.
Sveinn Kjartansson en hann hefur unnið í fjöldamörg ár sem hljóðmaður, meðal annars hjá Þjóðleikhúsinu sem yfirmaður hljóðdeildar, sem kennari í hljóðupptökum hjá Listháskóla Íslands og hann hefur einnig unnið við gerð fjölda platna allt frá rokki yfir í klassík, og flest þar á milli.
Þá verður fjöldi gestafyrirlesara á námskeiðinu sem deila af kunnáttu sinni á ýmsum sviðum.
Námið er 8 vikna langt og er kennt á kvöldin og eitthvað um helgar.
Námskeiðið er hópaskipt að mestu en undir lokin verða einstaklingstímar þegar kemur að hljóðblöndun.

Sýrland talsetur árelga fjölda mynda fyrir kvikmyndahús lan 