Logic 1
Logic 1 : 12 tímar ( 4x3 )
Verð: 39,900kr
Farið verður í upptökur á Logic. Kennt verður að klippa saman hljóðbúta, notkun á einföldum tólum til að eiga við hljóð (t.d. Compressor, EQ, Reverb, Delay). Einnig verður farið í einfalda hljóðblöndun og notkun á “loopum” og MIDI (Virtual Instruments).
Kennsla fer fram í fyrirlestraformi. Nemendur leysi verkleg dæmi heima. Kennt verður á Apple tölvur þar sem Logic er aðeins fáanlegt á Apple tölvur.
Fyrir hverja
-Þá sem langar að geta tekið upp einfalt lag eða annað efni og beitt grunnaðferðum til að ganga frá því.
-Tónlistarmenn sem langar að taka upp eigið efni
-Byrjendur sem langar að kynnast upptökuheiminum
Æskilegt er að fólk hafi þokkalega grunnkunnáttu á tölvur áður en það tekur þátt í námskeiðinu og til geta nýtt sér það að fullu verður fólk að hafa aðgang að tölvu með Logic upptökuforrit uppsett. Farið verður fram á að nemendur leysi verkleg dæmi heima.
Kennsla fer fram á fyrirlestrarformi og eins áður sagði verða sett fyrir verkleg dæmi sem nemendur leysa heima. Námskeiðið er uppsett á eftirfarandi hátt:
Dagur 1:
* Upptökur á Logic.
* Hvernig á að tengja.
* Stillingar f. Upptöku.
* Overdub.
*Fjölrásaupptökur.
Dagur 2:
* MIDI vinnsla í Logic.
* Uppsetning á MIDI hljóðfærum.
* MIDI upptökur.
* Unnið með lúppur (Loops).
Dagur 3:
* Klippingar og vinnsla með hljóð.
* Kennt að klippa saman og vinna með hljóðbúta.
* Lært á klippingar/samsetningartól í Pro Tools.
* Farið í effecta (EQ, Compressor, Reverb, Delay ofl.)
Dagur 4:
Hljóðblöndun (MIX) í Logic.
* Unnið áfram með effecta.
* Lært á Pro Tools mixerinn.
* Kennt að ganga frá lagi og setja á CD eða MP3 form.
Kunnátta að loknu námskeiði:
* Multitrack upptaka (fjölrása upptaka)
* Geta til að klippa saman mismunandi upptökur og gert að einni heild
* Laga hljóminn til (EQ og fleira)
* Búa til undirspil með MIDI (virtual instruments)
* Einföld hljóðblöndun (MIX)
* Búa til mp3 eða geisladisk

Sýrland talsetur árelga fjölda mynda fyrir kvikmyndahús lan 