PT 33 1/3
Pro Tools 33 1/3 : 15 tímar ( 5x3 )
Verð: 49,900kr
Sama og námskeið 1, en farið hægar í sakirnar. Farið í upptökur gegn um Pro Tools. Kennt er að klippa saman hljóðbúta. Notkun á einföldum tólum til að eiga við hljóðið (t.d. Compressor, EQ, Reverb, Delay osfv.) Einföld hljóðblöndun. Notkun á "loopum" og MIDI (Virtual Instruments.)
Kennsla fer fram í fyrirlestraformi. Nemendur leysi verkleg dæmi heima. Kennt verður á Apple tölvur en þeir sem nota PC geta nýtt námskeiðið jafnvel og Mac notendur.
Fyrir hverja
- Hugsað fyrir "heldri poppara og borgara."
Kunnátta fyrir námið:
Allt opið.
Kennsla fer fram á fyrirlestrarformi og eins áður sagði verða sett fyrir verkleg dæmi sem nemendur leysa heima. Námskeiðið er uppsett á eftirfarandi hátt:
Dagur 1:
* Grunnskipanir í Pro Tools og tölvum útskýrðar.
* Hvernig virkar skráarkerfið.
* Hvernig á að tengja MBOX við tölvu.
* Helstu hugtök á Pro Tools útskýrð.
* Almennur undirbúningur undir námskeiðið.
Dagur 2:
* Upptökur á Pro Tools.
* Hvernig á að tengja.
* Stillingar f. Upptöku.
* Overdub.
*Fjölrásaupptökur.
Dagur 3:
* MIDI vinnsla í Pro Tools.
* Uppsetning á MIDI hljóðfærum.
* MIDI upptökur.
* Unnið m lúppur (loops).
Dagur 4:
* Klippingar og vinnsla með hljóð.
* Kennt að klippa saman og vinna með hljóðbúta.
* Lært á klippingar/samsetningartól í Pro Tools.
* Farið í effecta (EQ, Compresor, Reverb, Delay ofl.)
Dagur 5:
* Hljóðblöndun (MIX) í Pro Tools.
* Unnið áfram með effecta.
* Lært á Pro Tools mixerinn.
* Kennt að ganga frá lagi og setja á CD eða MP3 form.
Kunnátta að loknu námskeiði:
* Multitrack upptaka (fjölrása upptaka)
* Geta til að klippa saman mismunandi upptökur og gert að einni heild
* Laga hljóminn til (EQ og fleira)
* Búa til undirspil með MIDI (virtual instruments)
* Einföld hljóðblöndun (MIX)
* Búa til mp3 eða geisladisk

Sýrland talsetur árelga fjölda mynda fyrir kvikmyndahús lan 