PT Byrjendur
Pro Tools fyrir byrjendur : 10 tímar ( 5x2 )
Verð: 29,900kr
Farið verður í upptökur á Pro Tools. Kennt verður að klippa saman hljóðbúta. Einnig verður farið í einfalda hljóðblöndun en áhersla verður lögð á að leika sér með “loop-ur” og MIDI (Virtual Instruments).
Kennsla fer fram í fyrirlestraformi. Nemendur leysi verkleg dæmi heima. Kennt verður á Apple tölvur en þeir sem nota PC geta nýtt námskeiðið jafnvel og Mac notendur.
Fyrir hverja
-Þetta námskeið er hugsað fyrir yngri kynslóðina (12-18) og er byrjendanámskeið.
Æskilegt er að fólk hafi þokkalega grunnkunnáttu á tölvur áður en það tekur þátt í námskeiðinu og til geta nýtt sér það að fullu verður fólk að hafa aðgang að tölvu með Pro Tools upptökuforrit uppsett (Mbox, LE eða HD). Farið verður fram á að nemendur leysi verkleg dæmi heima.
Kennsla fer fram á fyrirlestrarformi og eins áður sagði verða sett fyrir verkleg dæmi sem nemendur leysa heima. Námskeiðið er uppsett á eftirfarandi hátt:
Dagur 1:
* Upptökur á Pro Tools.
* Hvernig á að tengja.
* Stillingar f. Upptöku.
* Overdub.
* Fjölrásaupptökur.
Dagur 2:
* MIDI vinnsla í Pro Tools.
* Uppsetning á MIDI hljóðfærum.
* MIDI upptökur.
* Unnið m LOOPUR.
Dagur 3:
* Frekari MIDI vinnsla.
Dagur 4:
* Klippingar og vinnsla með hljóð.
* Kennt að klippa saman og vinna með hljóðbúta.
* Lært á klippingar/samsetningartól í Pro Tools.
* Farið í effecta (EQ, Compresor, Reverb, Delay ofl.)
Dagur 5:
* Hljóðblöndun (MIX) í Pro Tools.
* Unnið áfram með effecta.
* Lært á Pro Tools mixerinn.
* Kennt að ganga frá lagi og setja á CD eða MP3 form.
Kunnátta að loknu námskeiði:
* Multitrack upptaka (fjölrása upptaka)
* Geta til að klippa saman mismunandi upptökur og gert að einni heild
* Búa til undirspil með MIDI (virtual instruments) og “loop-um”
* Einföld hljóðblöndun (MIX)
* Búa til mp3 eða geisladisk

Sýrland talsetur árelga fjölda mynda fyrir kvikmyndahús lan 