PT1

Pro Tools 1 : 12 tímar ( 4x3 )

Verð: 39,900kr

Farið verður í upptökur á Pro Tools. Kennt verður að klippa saman hljóðbúta, notkun á einföldum tólum til að eiga við hljóð (t.d. Compressor, EQ, Reverb, Delay). Einnig verður farið í einfalda hljóðblöndun og notkun á “loopum” og MIDI (Virtual Instruments).

 

Kennsla fer fram í fyrirlestraformi. Nemendur leysi verkleg dæmi heima. Kennt verður á Apple tölvur en þeir sem nota PC geta nýtt námskeiðið jafnvel og Mac notendur.

 

Fyrir hverja

-Þá sem langar að geta tekið upp einfalt lag eða annað efni og beitt grunnaðferðum til að ganga frá því.

 

-Tónlistarmenn sem langar að taka upp eigið efni

 

-Byrjendur sem langar að kynnast upptökuheiminum

 

Æskilegt er að fólk hafi þokkalega grunnkunnáttu á tölvur áður en það tekur þátt í námskeiðinu og til geta nýtt sér það að fullu verður fólk að hafa aðgang að tölvu með Pro Tools upptökuforrit uppsett (Mbox, LE eða HD). Farið verður fram á að nemendur leysi verkleg dæmi heima.

 

Kennsla fer fram á fyrirlestrarformi og eins áður sagði verða sett fyrir verkleg dæmi sem nemendur leysa heima. Námskeiðið er uppsett á eftirfarandi hátt:

 

Dagur 1:

* Upptökur á Pro Tools.

* Hvernig á að tengja.

* Stillingar f. Upptöku.

* Overdub.

*Fjölrásaupptökur.

 

Dagur 2:

* MIDI vinnsla í Pro Tools.

* Uppsetning á MIDI hljóðfærum.

* MIDI upptökur.

* Unnið með lúppur (Loops).

 

Dagur 3:

* Klippingar og vinnsla með hljóð.

* Kennt að klippa saman og vinna með hljóðbúta.

* Lært á klippingar/samsetningartól í Pro Tools.

* Farið í effecta (EQ, Compressor, Reverb, Delay ofl.)

 

Dagur 4:

* Hljóðblöndun (MIX) í Pro Tools.

* Unnið áfram með effecta.

* Lært á Pro Tools mixerinn.

* Kennt að ganga frá lagi og setja á CD eða MP3 form.

 

Kunnátta að loknu námskeiði:

* Multitrack upptaka (fjölrása upptaka)

* Geta til að klippa saman mismunandi upptökur og gert að einni heild

* Laga hljóminn til (EQ og fleira)

* Búa til undirspil með MIDI (virtual instruments)

* Einföld hljóðblöndun (MIX)

* Búa til mp3 eða geisladisk