PT2

Pro Tools 2 : 15 tímar ( 5x3 )

Verð: 49,900kr

Farið verður ítarlega yfir þau tól sem Pro Tools býður uppá. Farið verður í vinnuaðferðir og flæði og hvernig best sé að nýta sér slíkt til að flýta fyrir ferlinu. Session Management og backup verða rædd og farið verður í flóknari klippingar og flóknara MIDI en á Pro Tools 1.

 

Kennsla fer fram í fyrirlestraformi. Nemendur leysi verkleg dæmi heima. Kennt verður á Apple tölvur en þeir sem nota PC geta nýtt námskeiðið jafnvel og Mac notendur.

 

Fyrir hverja

-Þeir sem hafa þokkalega grunnkunnáttu í Pro Tools og langar að kafa enn dýpra í möguleikana og tólin bakvið forritið.

 

Æskilegt er að hafa góða tölvukunnáttu og ágætis kunnáttu á Pro Tools áður en tekið er þátt í námskeiðinu.

 

Kennsla fer fram á fyrirlestrarformi og eins áður sagði verða sett fyrir verkleg dæmi sem nemendur leysa heima. Námskeiðið er uppsett á eftirfarandi hátt:

 

Dagur 1:

* Signal flow

* Farið yfir helstu leiðir sem hljóð fer í gegn um forritið. Hvað gerist frá því að hljóðið kemur inn og þangað það fer út aftur.

 

Dagur 2:

* Upptaka og klippingar (edit.)

* Farið ítarlega í öll helstu klippitól Pro Tools.

* Farið yfir vinnuaðferðir.

 

Dagur 3:

* Skipulag og vinnuaðferðir við upptökur í Pro Tools.

* Hvernig er haldið utan um verkefni.

* Frágangur og afritun.

 

Dagur 4:

* MIDI (musical instrument digital interface.)

* Setja upp midi rás með input og output yfir í annað tæki eða Virtual Instruments.
* Taka upp midi

* Vinna með midi

* Midi skrifað inn með mús

* Midi skrifað út sem nótur

 

Dagur 5

* Mix og frágangur

* Farið ítarlega í öll tól og aðferðir við að ganga frá lagi á fagmannlegan hátt og setja miðil (CD, MP3, Podcast.)

 

Kunnátta að loknu námskeiði:

* Geta unnið á skilvirkan og skipulegan hátt við Pro Tools

* Geta Unnið nánar með MIDI

* Dýpri skilningur á hljóðblöndunarmöguleikum Pro Tools.