Talsetningar

Langar þig að talsetja teiknimyndir?
Hefur þig alltaf langað til þess að sýna hvað í þér býr? Nú er tækifæriið því við erum að fara af stað með námskeið í talsetningu teiknimynda. Undanfarin ár höfum við staðið fyrir námskeiðum í talsetningu fyrir börn, unglinga og fullorðna við góðar undirtektir. Mörg þeirra barna og unglinga sem sótt hafa námskeið hjá okkur í talsetningu hafa fengið tækifæri til að tala inn á alvöru teiknimyndir, bæði fyrir sjónvarp og kvikmyndir.
Barna og unglinganámskeið hefst 21. september.
10 vikna námskeið fyrir börn og unglinga byrja 21. september og standa til loka nóvember. Kennt verður á þriðjudögum klukkutíma í senn. Skipt verður í aldurshópa.
Kennd eru undirstöðuatriði í radd- og talþjálfun. Farið er í skemmtilega leiki sem skerpa einbeitingu og snerpu. Börnin fá leiðbeiningu í upplestri og svo síðast en ekki síst kennslu í talsetningu. Þátttakendur fá að talsetja teiknimynd og þeir sem vilja mega syngja í stúdíói, einnig tökum við upp raddir allra til að eiga í raddbanka.
Aldurstakmark: Börn fædd 2001 og fyrr.
Verð kr. 29.900
Námskeið fyrir fullorðna í október.
Fullorðinsnámskeiðin verða með sama sniði, en standa í 4 vikur í stað 10. Kennd verða undirstöðuatriði í raddþjálfun og framsögn auk þess verður farið í skemmtilegar æfingar, persónusköpun og talsetningu.
Námskeiðin verða á laugardögum frá 2. október og fram í nóvember. Einnig verður tekið eitt síðdegi í að klára upptökur í hljóðveri.
Verð kr. 29.900
Talsetningarnámskeið – FRAMHALD
Nú bjóðum við einnig upp á framhaldsnámskeið fyrir þá sem hafa sótt talsetningarnámskeið hjá okkur á síðustu misserum.
Á framhaldsnámskeiðum í talsetningu verður það höfuðmarkmið að halda áfram þeirri þjálfun sem hófst á byrjunarnámskeiði. Áhersla verður lög á að skerpa á leik– og framsagnartækni og bæta við söngkennslu.
Í aðalatriðum verður farið í:
Leiklistaræfingar (framhald)
Spunaæfingar (nýtt)
Söngkennslu (nýtt)
Talsetningu á efni (framhald)
Framsögn (framhald)
Verð kr. 29.900
Að námskeiðum loknum fá allir þátttakendur viðurkenningaskjal, DVD disk með efninu sem þeir talsettu og raddprufu.
Þátttakendur á námskeiðum í talsetningu eiga möguleika á að komast að í talsetningu á teiknimynd fyrir sjónvarp eða kvikmyndahús.
Vekjum athygli á gjafakortum! Það er tilvalið að gefa börnum, barnabörnum, mömmu, pabba, afa og ömmu talsetninganámskeið í jólagjöf.
Skráðu þig núna á bokanir@syrland.is eða hringdu í 563-2910 á skrifstofutíma. Takmarkaður fjöldi.


Sýrland talsetur árelga fjölda mynda fyrir kvikmyndahús lan 