Upptökufræði

Almenn upptökufræði : 15 tímar ( 5x3 )

Verð: 69,900kr – Takmarkaður fjöldi 6 – Kennt verður í Sýrlandi, Skúlatúni.

Nemendur kynnast ýmsum hljóðnema- og formagnarategundum. Fræðast um hljómburð í rýmum og hvernig það hefur áhrif á hljóminn í upptökum. Hvernig á að stilla upp hljóðnemum fyrir hin ýmsu hljóðfæri. Skoða compressor, EQ, Delay og hina ýmsu effecta. Signalflow (hvaða leiðir hljóðið fer í hljóðveri.)

 

Kennsla verður blanda af fyrirlestrum og verklegri kennslu. Ekki verður kennt á tölvur eða sérstakan upptökubúnað.

 

Námskeið er gott að taka samhliða einhverju hinna námskeiðanna, þar sem kennt er á tölvur og sérstakan upptökuhugbúnað.

 

Fyrir hverja

- Þeir sem hafa verið eitthvað í upptökum eða langar að kynnast hvernig tæki og tól virka, hvernig hljóð hegðar sér og hvernig umhverfi hefur áhrif á hljóð.

 

-Þeir sem eru að taka upp í æfingahúsnæðum eða heima.

 

-Þeir sem hafa almennan áhuga á hljóðupptökum.

 

- Þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref í upptökum og langar að vita hvernig hljóðnemi, formagnari, mixer o.fl. virkar.

 

Kennsla verður blanda af fyrirlestrum og verklegri kennslu. Ekki verður kennt á tölvur eða sérstakan upptökubúnað.

 

Dagur 1:

* Signal flow og Mixer.

* Farið yfir helstu leiðir sem hljóðið fer innan hljóðvers og hvernig það er tengt við mixer.

* Hvernig er unnið með mixer.

 

Dagur 2:

* Hljóðnemar

* Skoðað hvernig hljóðnemar virka.

* Hljóðnemagerðir

* Staðstetning hljóðnema

 

Dagur 3:

* Hvernig hljóð hegðar sér inni í rými.

* Hvernig má stýra því hvernig hljóð hegðar sér í rými.

* Vandamál og lausnir * Samspil rýmis og hljóðnema

 

Dagur 4:

* Samspil ragmangs og hljóðs.

* Hvað er hum.

* Hver er munurinn á balanceruðu og óbalanceruðu.

* Hljóðstyrkur

* Jarðtengingar ofl.

 

Dagur 5:

* Hljóðbreytar (EQ)

* Compressorar

* Noise gate

* Expander

* Reverb

* Delay

 

Kunnátta að loknu námskeiði:

* Almennur skilningur á hljóðupptökum.

* Kunna að nota míkrófóna og formagnara á réttan og skilvirkan hátt.

* Kunna að nýta rými í hljóðupptökum.

* Hafa skilning á virkni hljóðbreyta (Effecta.)

* Skilja hvaða leiðir hljóð ferðast í upptökuferlinu. (Hvað gerist frá því að þú talar í míkrafón þar til þú heyrir það í hátölurum.)