Sýrland Mobile

mobile2.jpg

Fjallið til Múhameðs

Stúdíó Sýrland býður upp á ýmis konar færanlegan upptökubúnað, þar á meðal tvo sérhannaða og fullkomna upptökubíla sem hafa verið notaðir við upptökur víðsvegar um landið, m.a. á stórtónleikum, einleikstónleikum, á tónlistarhátíðum og  við margvíslegar tónlistarupptökur m.a. í kirkjum, tónlistarhúsum, félagsheimilum, íþróttahúsum og víðar.

Upptökubílarnir eru sérhannaðir og innréttaðir sem fullkomin stúdíó og geta nýst í allskonar verkefni; við tónleika, beinar útsendingar, til plötuupptöku, við sjónvarps-/kvikmyndatöku eða hvers kyns hljóðupptökur.

Ekkert verkefni er of stórt eða of lítið. Við finnum leiðir til þess að gera viðskiptavinum okkar kleift að taka upp nánast hvað sem er.

Verðið kemur líka á óvart. Hægt er að leigja upptökubílana í klukkutíma í senn, sem kostar álíka mikið og stúdíótíminn. Einnig er hægt að miða leiguna við sólarhring. Leitaðu til okkar og fáðu tilboð - við erum sveigjanlegir í samningum.