Um Sýrland

Stúdíó Sýrland er samnefnari fyrir nokkur fyrirtæki í hljóðvinnslu sem á síðustu árum hafa runnið saman í eitt. Fyrirtækin sem um ræðir eru: Stúdíó Sýrland, Hljóðsetning, Lotus Hljóð, Hljóðriti Hafnarfirði og Stafræna hljóðupptökufélagið.
Haustið 2007 keyptu Þórir Jóhannsson og Sveinn Kjartansson fyrirtækið af Senu, dótturfyrirtæki 365, sem hafði rekið Sýrland um árabil. Frá 1996 hefur Sveinn rekið Stafræna hljóðupptökufélagið en starfsemi þess tilheyrir nú Sýrlandi.
Stúdíó Sýrland er staðsett á 3 stöðum á höfuðborgarsvæðinu:
- -Talsetning og skrifstofur fyrirtækisins eru að Vatnagörðum 4.
- -Upprunalega Stúdíó Sýrland er staðsett að Skúlatúni 4 en þar eru 2 hljóðver auk þess sem sérstök masteringarsvíta, Sýrland Mastering (Írak) er staðsett þar.
- -Að Trönuhrauni 4 í Hafnarfirði er Sýrland Hafnarfirði (gengur gjarnan undir nafninu Hljóðriti) en þar eru 2 hljóðver.
Auk þess bíður Stúdíó Sýrland upp á tvo sérhannaða upptökubíla. Þeir hafa verið notaðir við upptökur víðsvegar um landið, m.a. á stórtónleikum í Laugardalshöll, tónlistarhátíðum og við ýmis konar tónlistarupptökur m.a. í kirkjum, tónlistarhúsum, félagsheimilum, íþróttahúsum og víðar.
Fyrirtækið hefur einnig yfir að ráða öflugri hönnunar- og framleiðsludeild sem sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á cd/dvd diskum í samvinnu við SonyDADC í Austurríki.
Námskeiðahald og kennsla er líka stór þáttur í rekstri Sýrlands. Þar er um að ræða talsetningarnámskeið fyrir börn og fullorðna, upptökunámskeið fyrir byrjendur og lengra komna, auk þess sem Stúdíó Sýrland sér um stærsta hluta kennslu í Hljóðfræði, sérstöku hljóðtækninámi sem kennt er í Tækniskóla Íslands.
Saga Sýrlands
Stúdíó Sýrland var stofnað af nokkrum félögum úr Stuðmönnum og Þursaflokknum á öndverðum áttunda áratug síðustu aldar. Þeir höfðu, áður en þeir stofnuðu Sýrland, rekið stúdíó sem kallaðist Grettisgat og var staðsett í bílskúr Egils Ólafssonar við Grettisgötu. Stúdíó Sýrland fluttist í Skúlatún 4 árið 1988 og hefur verið starfrækt þar síðan.
Árið 1991 keypti Skífan sem þá var í eigu Jóns Ólafssonar athafnamanns (og nú vatnsframleiðanda) Stúdíó Sýrland af Agli Ólafssyni.
Grjótnáman sameinast Sýrlandi
Grjótnáman var stúdíó sem rekið var inní Súðavogi og var í eigu hljómplötuútgáfunnar Steinars. Þegar Skífan og Steinar sameinuðust sameinaðist Grjótnáman rekstri Sýrlands og var það rekið sem einskonar B-stúdíó.
Árið 2004 var Grjótnámunni lokað og tækjabúnaðurinn fluttur til Hafnarfjarðar, í húsnæði sem áður hafði hýst hið fornfræga hljóðver Hljóðrita. Í dag er starfsemin þar undir nafninu Sýrland Hafnarfirði þó svo að margir kalli það ennþá Hljóðrita með vísan í söguna.
Hljóðsetning
Hljóðsetning ehf. var stofnuð haustið 1995 af þeim Erni Árnasyni, Sigurði Sigurjónssyni, Jóhanni Sigurðarsyni, Stefáni Hjörleifssyni og Jóni Ólafssyni. Fyrirtækið hóf rekstur sinn í Sóltúni 24 og voru fyrstu verkefnin talsetningar á barnaefni fyrir Stöð 3 og kvikmyndin um vaska grísinn Badda.
Hljóðsetning starfaði að mestum hluta við hljóðsetningu auglýsinga og fræðsluefnis auk talsetninga á barnaefni.
Hljóðsetning gekk í gegnum ýmiskonar eignarhald þar til Skífan keypti það og sameinaði það rekstri Sýrlands.
Stafræna hljóðupptökufélagið
Stafræna hljóðupptökufélagið var stofnað 1996 af Sveini Kjartanssyni og Ara Daníelssyni og starfaði nær eingöngu við upptökur á klassískri tónlist og djassi.

Sýrland talsetur árelga fjölda mynda fyrir kvikmyndahús lan 