Hljóðupptökunámskeið í Stúdíó Sýrlandi

Í vikunni 24. febrúar - 1. mars hefjast hljóðupptökunámskeið í Stúdíó Sýrlandi.

Á námskeiðunum verður lögð áhersla á vönduð vinnubrögð þar sem nútímatækni í hljóðvinnslu verður nýtt til hins ítrasta.

---------------------------------------------------------------------------

Námskeið 1 er ætlað fyrir byrjendur. 

Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur samtals 36 klst.

Kennt verður á laugardögum frá kl. 10 - 16. Námskeiðið fer fram í Vatnagörðum 4 að stærstum hluta.  Einnig verður kennt í Sýrlandi Skúlatúni og farið í heimsókn í Sýrland Hafnarfirði (Hljóðriti).

Kennarar verða Axel Árnason, Kristinn Sigurpáll Sturluson og Sveinn Kjartansson

Nemendafjöldi er takmarkaður við 12 manns

Verð: 150.000,- 

--------------------------------------------------------------------------

Námskeið 2 er ætlað fyrir lengra komna.

Námskeiðið stendur yfir í 8 vikur samtals 70 klst. og kennsla fer fram á kvöldin í miðri viku.

Lengra komnir teljast þeir vera sem kunna skil á einhverju hljóðvinnsluforriti t.d. ProTools, Nuendo, Logic eða sambærilegu og eitthvað hafa tekið upp sjálfir eða farið á einhver önnur hljóðupptökunámskeið.

Kennarar verða Axel Árnason, Kristinn Sigurpáll Sturluson, Sveinn Kjartansson og Arnþór Örlygsson.

Gestafyrirlesarar verða Ari Daníelsson, Kjartan Kjartansson, Guðmundur Kristinn Jónsson og Halldór K. Júlíusson

Nemendafjöldi er takmarkaður við 12 manns

Verð: 230.000,-

-----------------------------------------------------------------------------

SÝRLAND Vatnagörðum 4 | 104 Reykjavík | Tel.: +354 563 2910 Fax: 563 2911 | www.syrland.is | bokanir@syrland.is | Keyrt á WebEd Pro