Talsetningar
Um árabil höfum við unnið brautryðjendastarf við talsetningu efnis fyrir sjónvarp og kvikmyndahús. Helstu viðskiptavinir okkar eru íslenskar sjónvarpsstöðvar, kvikmyndahús og þekktustu framleiðendur barnaefnis í heiminum. Hjá fyrirtækinu er til staðar mikil þekking og reynsla af þýðingum og talsetningu sem skilar sér í vandaðri vinnu, áreiðanleika og sanngjarnri verðskrá.Í Sýrlandi Vatnagörðum eru þrjú hljóðver sem eru undir sama þaki og hefur hvert um sig yfir að ráða öflugum tækjakosti. Upptökuklefarnir eru þrír, einn fyrir hvert hljóðver. Sá stærsti þykir hljóma sérstaklega vel og hefur fengið viðurkenningu frá einum stærsta viðskiptavini Sýrlands, Disney, en þar á bæ eru gerðar gífurlegar kröfur til hljóðgæða og allrar eftirvinnslu.
Hafðu samband við okkur og við munum gera þér tilboð í þýðingu, talsetningu, lestur auglýsinga og hljóðsetningu af öllu tagi!
