Upplestrar og talsetningarnámskeið Stúdíó Sýrlands

Fyrir þá sem fæddir eru 1999 og seinna.

Hægt er að senda fyrirspurnir/skrá sig hér.

Tími: 9 klst.
Fyrsta námskeiðið verður haldið 18. febrúar.

Dagur 1
1. tími 30-40 mín.
Námskeiðssetning.
Fyrirtækið kynnt. Sýnishorn úr myndum sem við höfum gert.
Námskeiðið kynnt og námsskeiðsgögn afhent.
Foreldrar sérstaklega velkomnir!

Dagur 2
2. tími 60 mínútur
Kynningarleikur 10-15 mínútur.
Ýmsir hópspunaleikir 45 mínútur.

Hlé

3. tími - 60 mínútur
Raddæfingar. Líkamsstaða.
Allir æfa sig á framsagnaræfingum (úr námskeiðsgagnamöppu).
Upplestur á framsagnartextanum og tilsögn.

Dagur 3
4. tími - 60 mínútur
Upphitun
Upprifjun á framsagnaræfingum
Æfingar á texta til upplestrar
Upplestur á texta + tilsögn

Hlé

5. tími - 60 mínútur
Horft á myndina, skipað í hlutverk.
Leiðsögn í talsetningu.


Dagur 4
6. tími - 60 mínútur
Upphitun - 10 mínútur.
Allir æfa sig að talsetja með tilsögn í hljóðveri.

Hlé

7. tími - 60 mínútur
Upptökur á myndinni - 60 mín.

Dagur 5

8. og 9. tími - 120 mín.
Upptökur kláraðar á myndinni.
Raddbanki: 3 mismunandi útvarpsauglýsingar og stuttur teiknimyndabútur (jafnvel söngur)

Að námskeiði loknu fá þátttakendur auk viðurkenningarskjals, DVD disk þar sem á verður teiknimyndin sem þeir talsettu, útvarpsauglýsingin og raddprufur, sem hugsanlega færu inná raddbankann okkar líka. Auk þess væri af og til meðan á námskeiði stendur tekið video af þátttakendum sem líka væri með á diskinum.

Verð fyrir námskeiðið er 26.900 kr.


Hægt er að senda fyrirspurnir/skrá sig hér.



Ef þú vilt fá fréttir af talsetningarnámskeiðum þá skráðu þig með netfangi hér fyrir neðan.

08.02.2008 Talsetningarnámskeið fyrir börn og unglinga

Stúdíó Sýrland heldur námskeið í talsetningum fyrir börn og unglinga.

06.02.2008 Blu-ray hjá Sýrlandi

Getum nú boðið framleiðslu á blue-ray diskum í samvinnu við Sony

SÝRLAND Vatnagörðum 4 | 104 Reykjavík | Tel.: +354 563 2910 Fax: 563 2911 | www.syrland.is | bokanir@syrland.is | Keyrt á WebEd Pro