Velkomin á heimasíðu Sýrlands

Við sérhæfum okkur í öllu því sem snýr að hljóði, hljóðvinnslu og tengdum greinum. 

Músíkhljóðverin okkar eru fjögur - Stúdíó Sýrland í Skúlatúni, Stúdíó Sýrland í Hafnarfirði (betur þekkt sem Hljóðriti), Stúdíó Sýrland í Höfðatúni og masteringarstúdíóið Írak.  Auk þess bjóðum við upp á sérhannaðan upptökubíl sem hentar vel fyrir upptökur hvar sem er á landinu. Bjóðum líka uppá færanlegan upptökubúnað af ýmsu tagi.  Í áratugi hefur Sýrland hljóðritað plötur og tónleika margra helstu listamanna þjóðarinnar.  

Talsetningarhljóðverin okkar eru þrjú og staðsett í Vatnagörðum. Hjá okkur starfar samhentur hópur fagmanna á því sviði – frábærir leikstjórar, tæknimenn og leikarar sjá um að talsetja hundruði klukkutíma af sjónvarpsefni og kvikmyndum á ári.

Hönnunar og framleiðsludeildin er í Vatnagörðum.  Hún hefur margra ára reynslu í gerð auglýsingaefnis fyrir prent- og netmiðla.  Má þar nefna bæklinga, geisladiskaumslög, auglýsingar, kynningarefni og DVD valmyndir.  Framleiðsludeildin tekur að sér að framleiða geisladiska og DVD í samvinnu við einn  stærsta framleiðanda í heimi – Sony DADC í Austurríki

08.02.2008 Talsetningarnámskeið fyrir börn og unglinga

Stúdíó Sýrland heldur námskeið í talsetningum fyrir börn og unglinga.

06.02.2008 Blu-ray hjá Sýrlandi

Getum nú boðið framleiðslu á blue-ray diskum í samvinnu við Sony

SÝRLAND Vatnagörðum 4 | 104 Reykjavík | Tel.: +354 563 2910 Fax: 563 2911 | www.syrland.is | bokanir@syrland.is | Keyrt á WebEd Pro